Krákur frá Blesastöðum
IS2002187812
Krákur hefur hlotið 1.verðlaun fyrir afkvæmi.
Krákur gefur hross um meðallag að stærð með svipgott höfuð en oft merarskál. Hálsinn er reistur og grannur við skásetta bóga. Baklínan er prýðileg en bakið ekki breitt og lendin er jöfn og öflug.
Samræmið er mjög gott, afkvæmin eru léttbyggð, langvaxin, fótahá og sívöl. Fótagerð er undir meðallagi, fætur oft afturstæðir, sinar grannar og sinaskil lítil og útskeifni er algeng á framfótum. Hófar eru efnisþykkir og djúpir og prúðleiki í rúmu meðallagi. Krákur gefur úrvals tölt, mjúkt, rúmt, taktgott, lyftingar- og skrefmikið og takgott, skref- og lyftingarmikið brokk.
Afkvæmin stökkva mjúkt og hátt. Klárgangur er ríkjandi meðal afkvæma Kráks en góðir vekringar finnast í hópnum.
Afkvæmi Kráks eru mjög vel viljug og vakandi og bera sig vel með háum fótaburði. Krákur gefur fótahá og léttbyggð hross með úrvals tölt og mikinn fótaburð.
Krákur gefur fótahá og léttbyggð hross með úrvals tölt og mikinn fótaburð.
Hæsti kynbótadómur, 2006
Kynbótamat, BLUB
Sköpulag | Einkunn | BBLUB | Athugasemd |
Höfuð | 8,0 | 87 | Fínleg eyru |
Háls, herðar og bógar | 8,5 | 107 | Reistur, hátt settur og mjúkur |
Bak og lend | 8,5 | 108 | Mjúkt bak, jöfn lend. |
Samræmi | 9,0 | 108 | Léttbyggt og langvaxið. |
Fótagerð | 7,0 | 87 | Lítil sinaskil. |
Réttleiki | 7,5 | 95 | Framf: útskeifir. |
Hófar | 8,5 | 104 | Efnisþykkir |
Prúðleiki | 8,0 | 107 | |
Sköpulag | 8,24 | 102 |
Kostir | Einkunn | BLUB | Athugasemd |
Tölt . | 9,5 | 126 | Rúmt, taktgott, há fótalyfta, skrefmikið og mjúkt. |
Brokk | 8,5 | 119 | Öruggt og skrefmikið. |
Skeið | 5,0 | 89 | |
Stökk | 9,0 | 119 | Ferðmikið og hátt. |
Vilji og geðslag | 9,0 | 119 | Ásækni. |
Fegurð í reið | 9,0 | 125 | Mikið fas, mikill fótaburður. |
Fet | 6,5 | 96 | Skrefstutt og framtakslítið. |
Hægt tölt | 9,0 | 121 | |
Hægt stökk | 8,5 | ||
Hæfileikar | 8,4 | 115 | |
Aðaleinkunn | 8,34 | 114 |