Hrafnar frá Auðsholtshjáleigu
IS2007187017
Hrafnar er geðprúður og fasmikill. Hann er undan gæðingnum og heiðursverðalaunahryssunni Gígju frá Auðsholtshjáleigu og gæðingnum og heiðursverðlaunahestinum Aroni frá Strandarhöfði.
Hæst dæmda afkvæmi Hrafnars er hryssan Hrafna frá Hrafnkelsstöðum með 8,48 í aðaleinkunn sem hún hlaut 5 vetra gömul.
Hann hefur átt góðu gengi að fagna á keppnisbrautinni og hefur m.a. tekið þátt í A-flokki gæðinga og náð góðum árangri hæsta einkunn hans er 8,81 en í 5-gang hefur hann skorað 7,10
Hrafnar hefur hlotið 8,46 í aðaleinkunn kynbótadóms, 8,08 fyrir byggingu og 8,72 fyrir kosti, m.a 9,0 fyrir tölt, skeið, vilja og geðslag.
Hæsti kynbótadómur, 2013
Kynbótamat, BLUB
Sköpulag | Einkunn | BLUB | Athugasemd |
Höfuð | 7,5 | 103 | Vel opin augu. |
Háls, herðar og bógar | 8,0 | 100 | Reistur, mjúkur og djúpur |
Bak og lend | 8,5 | 110 | Djúp og öflug lend. |
Samræmi | 8,0 | 103 | Hlutfallarétt |
Fótagerð | 8,0 | 102 | Sverir liðir, lítil sinaskil. |
Réttleiki | 8,0 | 94 | |
Hófar | 8,5 | 106 | Efnisþykkir, hvelfdur botn. |
Prúðleiki | 8,0 | 111 | |
Sköpulag | 8,08 | 106 |
A
Kostir | Einkunn | BLUB | Athugasemd |
Tölt . | 9,0 | 124 | Taktgott, há fótlyfta, mjúkt og skrefmikið. |
Brokk | 8,0 | 113 | Skrefmikið, há fótlyfta. |
Skeið | 9,0 | 117 | Ferðmikið. |
Stökk | 8,5 | 112 | Teygjugott. |
Vilji og geðslag | 9,0 | 124 | Ásækni og þjálni. |
Fegurð í reið | 8,5 | 120 | Mikið fas. |
Fet | 8,5 | 108 | Taktgott. |
Hægt tölt | 8,5 | 113 | |
Hægt stökk | 8,0 | ||
Hæfileikar | 8,72 | 126 | |
Aðaleinkunn | 8,46 | 125 |