Gaumur frá Auðsholtshjáleigu
S2001187053
Gaumur hefur hlotið heiðursverðlaun fyrir afkvæmi.
Gaumur gefur stór hross með skarpleitt höfuð og vel borin eyru. Hálsinn er reistur, langur og mjúkur en djúpur við háar herðar. Bakið er vöðvað og burðugt, lendin er öflug en afturdregin.
Afkvæmi Gaums eru fótahá og myndarleg á velli en nokkuð grófbyggð. Sinar á fótum eru öflugar og fæturnir þurrir en sinaskil oft lítil, afturfætur eru nágengir og framfætur útskeifir. Hófar eru prýðilegir, efnisþykkir og djúpir.
Prúðleiki er um meðallag. Gaumur gefur mikla ganghæfni, rými og góðan vilja. Töltið er taktgott með háu og rúmu skrefi og brokkið skrefmikið og taktgott.
Afreksvekringar eru í afkvæmahópnum en klárhross eru algengari. Stökkið er ferðmikið og hátt og yfirleitt takthreint á hægu. Fetið er yfir meðallagi og oftast taktgott.
Gaumur gefur stór og virkjamikil hross með ásækin vilja, mikla reisingu og góðan fótaburð.
Hæsti kynbótadómur, 2008
Kynbótamat, BLUB
Sköpulag | Einkunn | BBLUB | Athugasemd |
Höfuð | 8,0 | 109 | Bein neflína, myndarleg og vel opin augu. |
Háls, herðar og bógar | 8,0 | 104 | Skásettir bógar, háar herðar, háls þykkur. |
Bak og lend | 8,5 | 107 | Mjúkt bak, löng og öflug lend. |
Samræmi | 8,5 | 117 | Hlutfallarétt, léttbyggt og fótahátt. |
Fótagerð | 8,0 | 95 | Rétt fótstaða, sverir liðir, lítil sinaskil. |
Réttleiki | 8,0 | 95 | |
Hófar | 8,0 | 115 | Sléttir og efnisþykkir |
Prúðleiki | 8,0 | 99 | |
Sköpulag | 8,13 | 112 |
Kostir | Einkunn | BLUB | Athugasemd |
Tölt . | 9,5 | 119 | Rúmt, taktgott og skrefmikið |
Brokk | 9,0 | 116 | Rúmt taktgott og öruggt |
Skeið | 8,5 | 96 | Ferðmikið og öruggt |
Stökk | 8,0 | 114 | Hátt |
Vilji og geðslag | 9,5 | 119 | Fjör og þjálni |
Fegurð í reið | 9,0 | 125 | Mikið fas, mikil reising og góður höfuðburður. |
Fet | 8,0 | 104 | |
Hægt tölt | 8,5 | 115 | |
Hægt stökk | 8,0 | ||
Hæfileikar | 9,05 | 115 | |
Aðaleinkunn | 8,69 | 117 |